Tímaáætlanir

Ágúst

Leitað er eftir því að skólaskrifstofur veiti keppninni brautargengi í sínu umdæmi. Skólastjórar láta vita hvort þeir ætla að vera með .

September

Kynningarfundur haldinn og bréf send í skóla.

Október

Skólar kynna þátttöku í lok mánaðar á þar til gerðu eyðublaði. Fræðslufundir í boði ef þörf er á.Veggspjald sent í skóla og á skólaskrifstofur.

Nóvember

Skólaskrifstofur leita að sal fyrir lokahátíð og  leita styrkja fyrir keppnina. Keppnin hefst formlega í hverjum skóla 16.11.

Janúar

Samráðsfundur Radda og skólaskrifstofa og hugað að stöðu mála og  undirbúningur lokahátíða ræddur. Verðlaunabækur útvegaðar. Staður og stund lokahátíða ákveðinn.

Febrúar

Unnið að dagskrá lokahátíða, tónlistaratriði, boðsgestir og dómnefnd valin.

Mars

Lokahátíðir héraða haldnar. Upplýsingar sendar fjölmiðlum. Skýrslum skilað.

Apríl / maí

Mat og úrvinnsla fer fram og drög lögð að framkvæmd  keppninnar næsta skólaár.